Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2022 var lögð fram fyrirspurn Yrki arkitekta dags. 11. október 2022 ásamt bréfi dags. 10. október 2022 um atvinnustarfsemi á jarðhæð hússins lóð nr. 32 við Gufunesveg, djúpgáma utan lóðar, blandaða íbúðargerð og blágrænar ofanvatnslausnir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.