Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjölga eignum, gera sér íbúð í risi, hækka þak, gera glugga og kvistum á austur- og vesturþekju íbúðarhúss á lóð nr. 24 við Sundlaugaveg. Stækkun 54.5 ferm., 87.8 rúmm. Erindi fylgir afrit af samþykki meðlóðarhafa dags. 31. maí 2022, ritað á A4 afrit af teikningu Basalts arkitekta nr. 1_01_01_01, dags. 25. maí 2022, skýringarteikning Basalt arkitekta nr. 1_01_01_03 dags. 22. maí 2022 og yfirlit breytinga á A3 afriti af aðalteikningum samþykktum 11. janúar 2022. Gjald kr. 12.600