Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Kristínar Rósu Egilsdóttur, dags. 22. júlí 2022, um að setja svalir á húsið á lóð nr. 190 við Langholtsveg með tröppum niður í garð. Einnig eru lögð fram frumdrög ódags. þar sem samþykki nágranna koma fram. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2022.