Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Katrínar Halldórsdóttur dags. 30. júní 2022 um að setja þaksvalir á bílskúr á lóð nr. 60 við Reynimel. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd ásamt ljósmyndum.Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.