Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Baldurs Helga Snorrasonar og Sunnu Kristínar Hannesdóttur, dags. 18. ágúst 2022, um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 34 við Gunnarsbraut, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2022.