Lögð fram umsókn Sjálfseignarstofnunar Kvennaathvarfsins dags. 22. ágúst 2022, um breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfi, svæði 4 vegna lóðarinnar nr. 1 við Undraland. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að reisa byggingu á lóðinni á tveimur hæðum, samkvæmt uppdr. Hornsteina - Arkitekta ehf. dags. 8. ágúst 2022.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.