Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Flóru Vuong Nu Dong, dags. 6. september 2022, um hækkun hússins á lóð nr. 51 við Bergstaðastræti og setja kvisti og svalir á húsið, samkvæmt uppdr. Sei ehf. dags. 6. september 2022. Einnig lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. ágúst 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2022.