Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Jóns Eyjólfs Jónssonar dags. 8. september 2022 um breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 131 við Langholtsveg sem felst í niðurrifi hússins á lóð og byggingu nýs húss þess í stað innan samþykkts byggingarreits með hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt tillögu Trípólí dags. 1. september 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.