Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2022 var lögð fram fyrirspurn Lárusar Kristins Ragnarssonar, dags. 8. október 2022, um að gera kjallara undir núverandi bílskúr á lóð nr. 11 við Grundargerði, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2022.