Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf., dags. 17. október 2022, ásamt minnisblaði dags. 17. október 2022 um að koma fyrir forsmíðuðu 70-80 fm. íbúðarhúsi á lóð nr. 78-82 við Sæviðarsund. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.