Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2022 var lögð fram fyrirspurn Páls Gunnlaugssonar, dags. 20. október 2022, um að setja tvöfaldan bílskúr á lóð nr. 20 við Lynghaga, samkvæmt uppdr. ASK arkitekta dags. 13. október 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022.