Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Jenssonar dags. 21. maí 2018 ásamt tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Melgerði, Grundargerði, Búðagerði og Breiðagerði. Í tillögunni felst stækkun lóðarinnar nr. 1 við Melgerði til norðausturs yfir borgarland, samkvæmt uppdr. Magnúsar Jenssonar dags. 21. maí 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. desember 2018 til og með 21. janúar 2019. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Ingibjörg F. Ottesen dags. 10. janúar 2019, Gísli Gunnlaugsson og Elfur Sif Sigurðardóttir dags. 11. janúar 2019, Guðríður Þorvaldsdóttir dags. 15. janúar 2019 og 21 aðili að Búðagerði dags. 15. janúar 2019.