Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2018 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Arnar Sigurðssonar dags. 19. ágúst 2018 um að koma fyrir svölum á þaki bílskúrs á lóð nr. 9 við Lokastíg, með útgengi frá svefnherbergi sem staðsett er á miðhæð hússins, samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta dags. 12. ágúst 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. september 2018.