Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2014 var lögð fram umsókn Skúlatúns 4 ehf. dags. 8. janúar 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.220.0 vegna lóðarinnar nr. 4 við Þórunnartún. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónassonar ark. dags. 8. janúar 2013. Umsókninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.