Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2013 var lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Jónassonar ark. f.h. Skúlatún 4 ehf., dags. 28. nóvember 2013 ásamt greinargerð s.d. varðandi hækkun á nýtingarhlutfalli á reitnum 1.220.0 í samræmi við uppdrætti Teikningar.is, dags. 25. nóvember 2013 að stækkun húss á lóð nr. 4 við Þórunnartún. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. janúar 2014.