Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 6. desember 2017 þar sem ekki er gerð athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar greinargerð á kortablaði 01 hefur verið lagfærð. Einnig er lagður fram uppdráttur PKdM dags. 30. júní 2017 lagfærður eftir athugasemdir Skipulagsstofnunar 19. desember 2017.