Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lögð fram umsókn PKdM arkitekta ehf., mótt. 7. apríl 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogavegar 71 til 87 vegna lóðarinnar nr. 69 við Sogaveg. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 1,5 metra í norðurátt, samkvæmt uppdr. PKM arkitekta, dags. 30. júní 2017. Einnig er lögð fram greinargerð
PKdm arkitekta ehf.
, dags. 7. apríl 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.