Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. apríl 2018 var lögð fram fyrirspurn Kolbeins Karls Kristinssonar dags. 26. janúar 2018 varðandi breytingu á notkun á 2. hæð hússins á lóð nr. 105 við Hverfisgötu úr vinnustofu í íbúð eða gististað. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2018.