Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júlí 2011 þar sem sótt er um leyfi fyrir útiveitingar fyrir 100 gesti og tímabundna skjólveggi á gangstétt fyrir framan hús nr. 13 við Pósthússtræti. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 11.6. 2011 Gjald kr. 8.000
Svar
Ekki er gerð athugasemd við útiveitingar fyrir 100 gesti, opnunartími verði til kl. 23:00 í samræmi við reglur um útiveitingar sem samþykktar voru í borgarráði 23. júní 2011. Ekki er hægt að fallast á skjólveggi.