Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. maí 2017 var lögð fram fyrirspurn
Zeppelin ehf.
, mótt. 24. apríl 2017, um að setja glervegg fyrir framan aðalinngang hússins á lóð nr. 3 við Ármúla. Einnig er lagt fram bréf
Zeppelin ehf.
, dags. 24. apríl 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2017.