Lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
, mótt. 1. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 24 við Borgartún í samræmi við rammaskipulag samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 5. apríl 2017. Í breytingunni felst breyting á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með allt að 65 íbúðum, lifandi jarðhæðir og bílastæði í bílakjallara. Lögð er áhersla á góðar göngutengingar í gegnum svæðið, mannlegan kvarða og góða aðstöðu fyrir hjólandi vegfarendur. Tillagan gerir ráð fyrir auknu byggingarmagni og hækkar nýtingarhlutfall á lóð úr 0,83 í 1,96, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 1. júní 2017. Einnig er lagt fram skuggavarp
Yrki arkitekta ehf.
, ódags, einnig er lagt fram minnisblað um umferðarmál dags. 24. ágúst 2017og fundargerð frá íbúafundi frá 16. ágúst 2017.