Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn T.ark Arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2019 ásamt bréfi dags. 16. apríl 2019 um breytingu á notkun hússins nr. 10 á lóð nr. 8-10 við Grensásveg úr verslunar- og skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019.