Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lagt fram erindi Umhverfisstofnunar dags. 14. apríl 2021 um hvort starfsemi
Ísteka ehf.
að Grensásvegi 8 og Eirhöfða 13 og 15 samræmist skipulagi. Einnig er lögð fram tilkynning
Ísteka ehf.
til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu dags. 23. mars 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.