Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta 2.-4. hæð í íbúðir, byggja svalir á vesturhlið 2. og 3.hæðar, innbyggðar svalir með svalalokunum á austurhlið og inndregnar þaksvalir meðfram langhliðum skrifstofu- og þjónustuhúsnæðis nr. 10, mhl 06, á lóð nr. 8-10 við Grensásveg. Gjald kr. 11.200