Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn
Fitjaborgar ehf.
mótt. 4. maí 2018 um rekstur veitingastaðar í flokki III á 2. og 3. hæð hússins á lóð nr. 3 við Austurstræti. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.