Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað/krá í flokki III, teg. F, fyrir 45 gesti í húsi á lóð nr. 3 við Austurstræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2014.
Gjald kr. 9.500