Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 5. ágúst 2014 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um umsókn Stórborgar ehf. um rekstrarleyfi í flokki III (til kl. 01:00 virka daga og til kl. 03:00 um helgar) fyrir veitingastaðinn Brooklyn Bar og Bistro, Austurstræti 3. Óskar er umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs um málið. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 7. ágúst 2014.