Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að grafa frá vesturhlið kjallara að hluta og gera gólfsíða glugga með útgengi í garð, breyta innra skipulagi í móttöku á 1. hæð og stækka kjallaraglugga á suðurhlið og innrétta gististað í flokki II, teg. gistiheimili á lóð nr. 31 við Sóleyjargötu. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 3. júlí 2017. Gjald kr. 11.000