Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Kristrúnar Árnadóttur dags. 1. desember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogavegar vegna lóðarinnar nr. 130 við Sogaveg. Í breytingunni felst aukning á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdrætti Inni og úti arkitekta dags. 25. nóvember 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. desember 2011 til og með 17. janúar 2012. Engar athugasemdir bárust.