breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 98A, 100 og 100A
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 850
17. desember, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 21. september 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.1 vegna lóðanna nr. 98A, 100 og 100A við Hverfisgötu. Breytingin felur í sér að heimilt verður að sameina lóðirnar í eina lóð, setja kvöð um uppbrot byggðar í samræmi við fyrri lóðarmörk ásamt kvöð um þrjá innganga. Lyftustokkur og annar tækjabúnaður standi upp fyrir byggingarreit og íbúðum fækkar um tvær. Á lóð nr. 100 verður heimilt að byggja ofan á núverandi byggingu eða rífa hana og byggja nýja ásamt því að byggingarreitur minnkar og verður í samræmi við grunnflöt núverandi byggingar. Byggingarreitur og heimild fyrir kjallara fellur út ásamt því að sér byggingareitur stiga- og lyftuhúss fellur út, samkvæmt uppdr. Arkþing - Nordic ehf. dags. 16. september 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. október 2021 til og með 23. nóvember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Þorlákur Hilmarsson dags. 14. nóvember 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. nóvember 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101580 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022410