Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 15. desember 2020 ásamt bréfi dags. 15. nóvember 2020 um fjölda bílastæða á lóðum nr. 98A, 100 og 100A og fjölgun íbúða úr 14 í 15, samkvæmt tillögu Arkþing/Nordic ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2021.