Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Tark Arkitekta ehf. dags. 13. ágúst 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.154.3, Barónsreits, vegna lóðanna nr. 26 og 30 við Skúlagötu. Í breytingunni að bílastæðaskilmálar íbúða breytist frá því að vera 1 blst/íbúð í 1 blst á 120 fm. íbúðarhúsnæðis, stækka byggingarreit Skúlagötu 26 um 0,8 m. og breyta hluta almennra bílastæða á borgarlandi í rútustæði, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 13. ágúst 2018. Tillaga var grenndarkynnt frá 22. nóvember 2018 til og með 20. desember 2018. Engar athugasemdir bárust.