Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Brynjars Emilssonar dags. 29. janúar 2020 um breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar nr. 68 við Stigahlíð, færa göngustíg og gera bílastæði á bakhluta lóðar aðgengilegt. Einnig er lögð fram skissa Brynjars Emilssonar ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020.