Lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 8. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að heimilt er að hús við götu verði þrjár hæðir með lágu risi, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf., dags. 28. september 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.