Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2017 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 24. ágúst 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits 2, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu sem felst í að breyta efstu hæðinni í hæð í stað rishæðar. Einnig eru lagðir fram uppdrættir K.J. hönnunar, dags. 27. mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2017.