Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 8. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að heimilt er að hús við götu verði þrjár hæðir með lágu risi, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf., dags. 17. október 2017. Tillaga var grenndarkynnt frá 31. október 2017 til og með 28. nóvember 2017. Engar athugasemdir bárust.