Lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 24. ágúst 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits 2, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu sem felst í að breyta efstu hæðinni í hæð í stað rishæðar. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Kj-hönnunar, dags. 27. mars 2017.