Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2015 var lögð fram umsókn Yngva Sindrasonar dags. 28. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits 2, vegna lóðarinnar nr. 5 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og hækkun húss, samkvæmt uppdrætti Á stofunni arkitektar ehf. dags. 24. apríl 2015. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergþórugötu 3, 4, 6, 6B, 7 og 8 og Njálsgötu 28, 30, 30B og 32B.