Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní 2018 var lögð fram fyrirspurn 64° Reykjavík mótt. 19. mars 2018 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 23 við Lindargötu til norðurs og setja þaksvalir að hluta til ofan á 2. hæð. Lega mænis verður aðlöguð breikkun hússins og hækkar mænishæð við það lítillega, samkvæmt uppdr. dags. 20. mars 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2018.