Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð, sem skipt verður í 15 vinnustofur fyrir listamenn, koma fyrir svölum á vesturhlið og fellistiga á suðurhlið og skipta rými 0109 á 1. hæð í tvö í húsi á lóð nr. 4 við Köllunarklettsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Umsögn Faxaflóahafna um breytingu á deiliskipulagi og samþykki meðeigenda dags. 23. maí 2018 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000