Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Studio Granda ehf. dags. 5. nóvember 2020 ásamt bréfi dags. 5. nóvember 2020 um breytingu á deiliskipulagi reits 1.180.2 vegna lóðarinnar nr. 21 við Ingólfsstræti sem felst í að endurgera friðaðan geymsluskúr á baklóð frá árinu 1903 sem er 38,3 m2 að grunnfleti og breyta skúrnum í íbúðarhús, reisa nýbyggingu á baklóð í sömu stærð og geymsluskúrinn og samtengja húsin með lægri tengibyggingu á einni hæð, samkvæmt uppdr. Studio Granda ehf. dags. í október 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 3. nóvember 2020. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020.