Lögð fram umsókn Karls Magnúsar Karlssonar dags. 24.maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 45A við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit Sundhallarinnar í austur fyrir viðbyggingu á tæknirými innilaugarinnar ásamt því að tengja núverandi tæknirými útilaugarinnar við umrædda stækkun neðanjarðar, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. VA arkitekta ehf. dags. 25. maí 2022. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. maí 2022.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.