Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. október 2022 var lögð fram fyrirspurn Ásmundar Vilhjálmssonar dags. 28. september 2022 um uppbyggingu fjórbýlis á baklóð Einarsness 74 sem yrði Einarsnes 74B og verður aðkeyrsla að lóð við vesturenda Einarsnes 74. Einnig eru lagðar fram skissur á yfirlitsmyndum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2022.