Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2012 þar sem spurt er hvort breyta megi 300 ferm. hluta af bílakjallara í skólarými og geymslur og fækka bílastæðum þar með um 17 í Vogaskóla á lóð nr. 2 við Ferjuvog. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. janúar 2013.