Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, frumathugana mannvirkjagerðar, varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogaskóla. Breytingin felur í sér að byggingarreitur fyrir skólann er stækkaður og byggingarmagn skólahúsnæðis er aukið. Fallið er frá því að minnka bílakjallara og fækka bílastæðum á lóðinni samkvæmt uppdrætti Glámu -Kím dag. 21. janúar 2014.