Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. október 2015 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 13. október 2015, þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Hótel Hildu ehf. um rekstrarleyfi í flokki III að Bárugötu 11. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt leiðréttri umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. október 2015.