Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2012 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja skorstein og koma fyrir lyftu, byggja kvist á rishæð, koma fyrir björgunarsvölum, breyta innra skipulagi og fjölga gistirýmum í 15 fyrir samtals 30 gesti í gistiheimili á lóð nr. 11 við Bárugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. febrúar 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 23. febrúar 2012 fylgja erindinu. Stærðir óbreyttar Gjald kr. 8.500 + 8.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bárugötu 9 og 13 og Öldugötu 10 og 12