Á fundi skipulagsfulltrúa 1. mars 2013 var lagt fram tölvubréf skipulags- og byggingafulltrúa Seltjarnarness dags. 26. febrúar 2013 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á tillögu að deiliskipulagi Lambastaðahverfis á Seltjarnarnesi dags. 14. september 2009 síðast breytt 5. nóvember 2012. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 14. september 2009 síðast breytt 5. nóvember 2012.