Fyrirspurn
Lögð fram erindi Seltjarnarnesbæjar dags. 2. mars 2018 þar sem óskað er eftir umsögn um verklýsingu dags. 26. janúar 2018 fyrir breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 og deiliskipulagi Valhúsahæðar. Um er að ræða stækkun íbúðasvæðis og afmörkun lóðar fyrir búsetukjarna fatlaðs fólks við Kirkjubæ.