Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fimm hæða atvinnu- og fjölbýlishús með geymslu- og bílakjallara, eitt stigahús með lyftu og aðkomu bæði frá garði og götu, alls 41 íbúð á skilgreindum reit deiliskipulags C á lóð nr. 1 við Grensásveg. Stærð nýbyggingar með kjallara er 4.617,2 ferm, 15.599,6 rúmm. Erindi fylgir greinargerð arkitekts dags. 10. apríl 2021. Gjald kr. 12.100